ALLT FASTEIGNIR – SÍMI 560-5511 KYNNIR Böðmóðsstaði 7 **Kaffihóll** alls 3.25ha land ásamt 65,4 fm fallegum sumarbústað með þrem svefnherbergjum og verönd. Frábær staðsetning í miðjum gullna hringnum. Góðir möguleikar á frekari uppbyggingu á þessari lóð. Upplýsingar gefur Palli í síma 698-6655 pall@alltfasteignir.is
Nánari lýsing:
Forstofa, gangur, þrjú svefnherbergi með rúmum, baðherbergi með sturtuklefa ásamt stofu og eldhúsi. Við inngang húss er útigeymsla. Sólpallur á 3 vegu með útgangi frá stofu, rotþró, heitt og kalt vatn. Ný eldavél, ofn og ísskápur. Heitt vatn tekið inn nýlega og þar með nýir ofnar + hitagrind. Nýtt WC og sturtuklefi. Ný rotþró.
Heitavatnslögnin liggur þvert yfir allt landið og því möguleiki að tengjast inn á lögnina annars staðar á lóðinni.
Lóðin er 3.25ha og bíður upp á mikla möguleika til frekari uppbyggingar. Bústaðurinn er mjög vel um genginn og stendur á staurum. Búið er að planta mikið af trjám á landareigninni sem gefur mikið skjól. Landareignin gefur mikla möguleika til útivistar og ævintýra fyrir börn og fullorðna.
Ekið er um 10 km fram hjá Laugarvatni, komið að skilti sem á stendur Böðmóðsstaðir á hægri hönd, beygt þar niður og ekið um 900 metra niður Böðmóðsstaðaveg. Þar er skilti á vinstri hönd merkt Kaffihóll. Þá eru þið komin. Sumarbústaðurinn sést ekki frá veginum.
Nánari upplýsingar veitir Palli gsm 698-6655 pall@alltfasteignir.is og Þorbjörn Pálsson lögg. fasteignasali thorbjorn@alltfasteignir.is
Vantar eignir á skrá, persónuleg þjónusta. Þú finnur okkur líka á facebook
https://www.facebook.com/fasteignasolur/
ALLT FASTEIGNIR – HAFNARFIRÐI – GRINDAVÍK - REYKJANESBÆ - VESTMANNAEYJUM
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.
Viltu elta drauminn: www.solareignir.is